Smám saman íslamsvæðist Evrópa þökk sé fjölmenningarstefnu vinstri manna og atvinnurekenda, sem þrá að þurfa ekki að borga skóflulýðnum hátt kaup. Það má segja að Evrópa hafi ekki sérstaklega sterkar taugar til mál- og tjáningarfrelsis. Er þar skemmst að minnast valdatíma Herra Adolfs Hitlers, leiðtogi og Félaga Joseps Stalins, í Rússlandi. Hvorugur þeirra hafði sérstakt umburðarlyndi fyrir skoðunum, sem ekki féllu að hugmyndaheim þeirra og hafa sjálfsagt ekki misst neinn svefn yfir fjöldamorðum á óæskilegum.
Belgíumaður dæmdur fyrir ,,kynþáttahaturstal“ fyrir að tæta í sundur Kóraninn fyrir framan hóp Múslíma.
Dr. Jogchum Vrielink (Samræmandi fyrir miðstöð mismununarlaga við háskólann í Leuven, í Belgíu) hefur sent þetta frá sér:
,,Maður hefur verið dæmdur fyrir ,,kynþáttahaturstal“ í Belgíu vegna þess að hann reif Kóraninn í sundur á opinberum vettvangi, fyrir framan augu hóps Múslíma. Þetta mál sýnir þörfina fyrir að vernda mál- og tjáningarfrelsið gegn þeim sem leitast við að gera ,,íslamsfælni“ refsiverða.
Þann 8. Júní 2012 tók maður, sem nefndur er Arne S., þátt í mótmælafundi sem skipulagður var af hinum róttæka hægri stjórnmálaflokk, Vlaams Belang (Hagsmunamál Flæmingja), gegn byggingu mosku í hinni belgísku strandborg Ostend. Í kjölfar mótmælafundarins reif Arne S Kóraninn í sundur fyrir framan lítinn hóp Múslíma, sem hann hafði átti í orðaskiptum við. Hinn opinberi ákærandi stefndi S. fyrir að æsa til haturs, mismununar og ofbeldis á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.
Verjandi sakbornings krafðist sýknunar saka, og staðhæfði að ekki hefði verið brotið gegn andkynþátta löggjöfinni. Glæpadómstóllinn í Bruges dæmdi manninn, samt þann 11. Mars 2013. Að hluta til vegna óhagstæðrar sakaskrár viðkomandi, var dómurinn tiltölulega þungur, sem innihélt fjögurra mánaða skilorðslaust fangelsi og sekt upp á 600 Evrur. Rétturinn taldi að málsatvik væru alvarleg og bæru vitni um ,,beran skort á umburðarlyndi og afar vafasama afstöðu.“
Stuðst er við frétt á þessari slóð og þar er ítarefni ásamt áhugaverðum ummælum:
Kóraninn var brenndur að viðstöddum hóp vina og kvikmyndað og síðan var myndbandinu póstað á ,,facebook.“
Eftir fréttaritara Daily Mail. 26. 11. 2010.
Með þessari aðgerð telja yfirvöldin að hún hafi tendrað trúarhatur eftir meinta Kóranbrennu á enskri útgáfu á Kóraninum - og síðan sett það upp á ,,Facebook.“
15 ára táningurinn sem býr í Sandwell svæðinu í Birmingham, West Mids, far mynduð fyrir tveim vikum á skólalóðinni við að brenna þetta pólitíska rit múslímaflokksins.
Lögreglan hefur staðfest að tilkynnt hafi verið um myndbandið og það síðan fjarlægt,
Einnig var 14 ára piltur tekinn fastur á þriðjudaginn vegna gruns um hótanir. Bæði hafa verið látin laus gegn tryggingu.
Þetta atvik gerist aðeins tveim og hálfum mánuði eftir að sex ungir menn voru handteknir eftir að hafa tekið kvikmyndir af sjálfum sér við að hella bensíni á hernaðarrit múslíma Kóraninn og kveikja í öllu saman á eftir bak við öldurhús í Tyneside.
Talsvert vængjablak hefur verið í gangi í Bretlandi út af þessari vanvirðingu við Jihad rit Múhameðs Sendiboða og hafa pólitískir rétthugsarar og múllar á svæðinu haft nóg að gera við að fræða fólk betur um ,,viðkvæmni“ múslíma og fara varlega í þessum efnum, því að þeim þykir vanta talsvert á að ungdómurinn auðsýni Jihadritinu nægilega lotningu, enda trúa þeir að þarna séu um boðskap Allah sjálfs að ræða. T.d. eftirfarandi gullmoli:
Berjist þar til allir eru Múslímar. Herskylda.
Kóran, 002:193. Og berjist(qaatiloohum) við þá þangað til engin vantrú (Fitnah) eða nauðung (Múslímar líta á tilveru Kafíranna á Vesturlöndum sem ógn við sig og nauðung) er lengur fyrir hendi og einungis ríkir Íslam (og sharia lög) og trú á Allah. En ef þeir hafa tekið trúna, þá berjist eingöngu við Ekki-Múslíma (Kafírana) .
Stríðslok koma aðeins til greina þar sem Múhameðstrú ræður að fullu og öllu í “Dar al-Islam eða Múhameðstrú” hús friðarins. Það sem ekki flokkast sem “Hús friðarins er “Dar al-Harb”, hús ófriðarins.
GERÓLÍK MENNING Í VESTRI OG AUSTRI.
Getið þið ímyndað ykkur að einhver í Bretlandi færi að æsa sig upp út af því þó að Biblían væri brennd opinberlega. Ég er nokkuð viss um að enginn mundi lyfta litla fingri út af því. En eins og ég hefi oft bent á. Stór fjöldi múslíma þjáist greinilega af alvarlegri geðbilun með lestri og átrúnaði á Jihad bókina Kóraninn, eins og Dr. Wafa Sultan, sálfræðingur frá Sýrlandi og Dr. Ali Sina benda á og þurfa bráðnauðsynlega að fá meðferð hjá sálfræðingum og róandi lyfjagjöf. Viðkvæmni múslíma virðist ekkert hamla þeim í að brenna kirkjur, ofsækja og drepa kristið fólk og skjóta presta á færi ef færi gefst á því í Mið-Austurlöndum eða Kosóvo á Balkanskaganum.
Múslímar hika ekki við að brenna Biblíur, enda vita þeir að Kristið fólk er siðað fólk sem ekki fer um organdi, grenjandi og drepandi eins og þegar einhver brennir Kóraninn.
Kristin fréttastofa [www.fcnn.com] hefur skýrt frá því að íranskar – hugsanalögreglur - hafi brennt hundruð Biblía.
Talsmaður FCNN sagði ASSIST fréttastofunni (ANS), ,,Þessi aðgerð [Biblíubrennan], sem staðfest hefur verið af upplýstum heimildum, fór í loftið á stöð sem tilheyrir Pasdaran , sem er sjálfstæðum her, er skammarleg og þeir sem ábyrgir eru fyrir henni þurfa að finnast og fletta ofan af þeim fyrir öllum heiminum.
Skýrslan sagði að á Sunnudegi, 29. Maí 2010, hafi Ati Fréttastofan, sem tilheyrir Morteza Talaee, sem er fyrrverandi yfirmaður hugsanalögreglunnar og núverandi meðlimur í borgarstjórn Teheran, ,,Í venjulegum áróðri gegn Kristnidómi“ sagt frá því að fréttamaður þeirra um félagsmál hefði birt frásögn um af sendingu af svonefndum ,,fölsuðum Gamla Testamentum og Guðspjöllum“ sem barst til landsins í gegn um vesturlandamærin frá Írak.
Tveim dögum síðar, mánudaginn 31. Maí 2010, var þessi frásögn endurtekin af hinni opinberu gagn-hugsanaglæpafréttastofu Pasdaran hersins sem heitir ,,Gerdaub“ sem sagði að stór sending af ritningum Kristinna manna og Gyðinga hefði komið inn í Íran í gegnum vestur Azerbaijan svæðið og samkv. hugsanaöryggisvörðum svæðisins, væri ,,hernámsliðið“ í vesturhluta Íraks ábyrgt fyrir þessum alvarlegu glæpum.
FCCN sagði einnig að Gerdaub, sem er hin opinbera vefsíða Pasdaran hersins [einnig þekkt sem Íranski Byltingarvörðurinn (IRCG] hefði haldið skýrslu sinni áfram með því að vitna til hugsanaöryggisvarðar sem sagði: ,,Sumum þessara bóka er dreift á svæðinu, en flestum bókanna er dreift um allt landið. Bara á síðustu mánuðum, hafa hundruðum Biblíufalsana verið gripnar og brenndar í landamæraborginni Sardasht.“
Lesendurnir vita ef til vill ekki hvað múslímar eiga við þegar talað er um ,,Falsaðar Biblíur“. Íslam kennir að Kristið fólk og Gyðingar hafi falsað hina upphaflegu Biblíu og að sú Biblía sem til er í dag, sé því fölsuð. Sjá Kóran 003:078. Múslímar hafa ekki bent á hvar hina ófölsuðu Biblíu er að finna. Allar rannsóknir á Dauðahafshandritunum sem eru frá því skömmu eftir daga Krists, benda til þess að Biblían sé eins í dag og hún var þá. Sem sagt óbreytt.
Múhameð gerir þetta allt enn flóknara fyrir múslíma, því í málsgrein Kóransins nr. 010:094 ráðleggur hann múslímum að leita ráða hjá Kristnu fólki og Gyðingum, sem fengu bókina áður en múslímar, ef þeir skilja ekki eitthvað í Kóraninum,
Hér eru slóðir á Biblíubrennur múslíma víðsvegar um heiminn:
Uthman Kalífi (717-720 e.kr.) gaf skipun um að brenna skyldi alla Kórana nema hans eigin samantekt. Það tókst þó ekki betur til en svo að um 200 mismunandi útgáfur af Kóraninum er að ræða í dag í heiminum, og 200 söfnuðir, sem hver um sig bannfærir hina sem trúvillinga og þar með réttdræpa. Stærsti söfnuðurinn er Sunní múslímar sem skiptast í ótal fylkingar og síðan Shia múslímar.
Lausleg Þýðing á myndbandinu um Kóranbrennur fyrr og síðar.
,,Enginn ykkur skal halda því fram að hann hafi allan Kóraninn undir höndum, því hvernig veit hann að hann sé heill? Mikið af Kóraninum er glatað. Látið hann því segja: ,,Ég hefi náð í það sem er fáanlegt.“ Ibn Umar.
Aymus hvað ertu að gera? Eru þetta ekki Kóranar?
Hvað með það?
Þú ætlar þó ekki að brenna þessar bækur er það nokkuð?
Amus: ,,Mér hafði dottið það í hug.“
,,Ekki brenna bækurnar, þær eru fullar af upplýsingum, sjáðu hér t.d.? Ég opna eina af tilviljun hérna: ,,Uthman sendi afrit til allra svæða múslíma af því sem þeir höfðu afritað og gaf skipun um að allt annað Kóran efni skyldi BRENNA, hvort sem það væri skráð á handritsbrot eða heil afrit.“ – Sahih al-Bukhari 6.61.510.
Aymus: ,,Leyfðu mér að sjá þetta. Svo að alla Kórana aðra ætti að BRENNA, það hefur því nú þegar farið fram KÓRANBRENNUDAGUR.“
„Gott að við brenndum ekki allar bækurnar, við skulum kíkja í þær og sjá hvers við verðum vísir.“
Amus: ,,Sahih Muslim - Abu Musa al-Ash´an sendi eftir upplesurum frá Basra (Írak). Þeir komu til hans og voru 300 saman. Þeir þuldu Kóraninn upp og hann sagði: ,,Þið eruð þeir bestu meðal íbúa Basra, því þið eruð þulirnir meðal þeirra. Þið skuluð því halda áfram að lesa hann upp. (En hafið í huga) Að langvarandi lestur herði hjarta ykkar eins og gerðist með þá sem voru á undan ykkur.“ Sahih al-Muslim 2286.
Ja, hérna, þeir höfðu þá hart hjarta, við skulum athuga þetta betur:
„Við vorum vanir því að fara með kafla (surah) sem líktist Bara´at kaflanum að lengd og strangleika. Ég er samt búinn að gleyma honum: ,,Ef til voru tveir dalir fullir auðæva, handa syni Adams, mundi hann þrá hinn þriðja dal, og ekkert mundi fylla maga sona Adams nema ryk.“ Og við vorum vanir að fara með kafla sem líktist einum kaflanum í Musabbihat og ég hefi gleymt honum…“ - Sahih al-Muslím 2286.
Amus: ,,Svo þetta merkir að tvo heila kafla vantar, vegna þess að múslímar gleymdu þeim.“
,,Leyfðu mér að sjá þetta. Já, þarna er fullyrt að tvo kafla vanti í Kóraninn því að múslímar hafi gleymt þeim.“
Amus: ,,Heyrðu, sjáðu þetta:“
„Ubayy var bestur okkar við að fara með Kóraninn, samt skildum við eftir sumt af því sem hann þuldi upp. Ubayy sagði: ,,Ég hefi numið þetta frá vörum sendiboða Allah og mun ekki skilja það við mig vegna nokkurs hlutar.“ - Sahih al-Bukhari 6.61.527.-„
,,Var hann besti þulur Kóransins“
Amus: ,,Já.“
,,En hann segir að í sínum Kóran sé eitthvað sem ekki er í þessum Kóraninum.“
„Flettum upp í þessum Kóran og brennum hann svo.“
,,Spámaðurinn stendur nær hinum trúuðu heldur en þeirra eigin sjálf, og eiginkonur hans eru mæður þeirra.“ Qur´an 033:006. Í athugasemd með þessari málsgrein segir Yusuf Ali: ,,Í sumum eintökum Kóransins, eins og í Ubay ibn Kab, birtast orðin ,,Og hann er faðir þeirra.“
Amus: ,,Svo að Ubay var með orð í sínum Kóran sem ekki voru í þessum Kóraninum. En var hann lærðasti maðurinn í Kóraninum?“
,,Ef Masud var topp fræðimaður um Kóraninn, þá hlýtur að vera einhvers staðar eitthvað um hann. Já, hérna er það:“
,,Ég heyrði Spámanninn segja, ,,Lærið Kóraninn frá fjórum aðilum: ´Abdullah ibn Masud, Salim, Muádh og Ubai bin Ka´b´.“ - Sahih al-Bukhari 6.61.521.
Ég er að hugsa um hvað lærðasti maður í Kóraninum hefur að segja:
Amus: ,,Við skulum líta á fleiri eintök - já hérna er eitt eintak.“
,,Fólkið hefur gerst sekt um sviksemi við lestur Kóransins. Mér finnst betra að fara með hann samkvæmt því sem hann [Muhamed] gerði, sem mér þótti vænna um heldur en Zayd Ibn Thabit“.
-Ibn Sa´d, Kitab al-Tabaqat al-Kabir, Bindi 2, p.444.
,,Með öðrum orðum að með því að lesa þennan Kóran gerist fólkið sekt um blekkingar. Ef til vill hafa hinar bækurnar eitthvað að segja um þetta. Lítum á þessa. Já, þarna er þetta.“
,,Ó, þér múslímar! Forðist afrit Mushaf og upplestur Zaid bin Thabit. Ég sver við Allah! Þegar ég játaðist Íslam var hann aðeins í móðurkviði heiðingja“ – Og það var varðandi þetta sem Abdullah bin Mas´ud sagði: ,,Ó! Þjóð Íraks! Haldið ,,Masahif“ hjá ykkur og felið þá.“ - Jami At-Tirmidhi 3104.
Amus: „Svo að topp fræðimaður Íslams segir að forðast skuli að afrita og lesa það eintak af Kóraninum sem er gjaldgengt í dag.“ En Múslímar hafa alltaf haldið því fram að Kóraninn sé fullkominn, orð fyrir orð og staf fyrir staf (5:16 mín).
Ég er viss um eitthvert eintakið er fullkomlega varveitt. Kíkjum á þennan“ (5:29 mín), kikjum á hana.
Sagt var frá því að Aishah sagði: ,,Málsgreinin um grýtingu og brjóstamjólk var opinberuð tíu sinnum, og blaðsíðan var hjá mér undir koddanum. Þegar Sendiboði Allah lést, vorum við upptekin af dauða hans, og tamin kind komst inn og át hana.“ - Sunan Ibn Majah 1944.
,,Er málsgreinin um grýtingu og brjóstagjöf í Kóraninum?“
Amus: ,,Nei! Vegna þess að rollurnar hennar Aishu átu þær.
,,Við verðum að komast til botns í þessu máli.“
Amus: ,,Svo að ég skilji þetta rétt. Múhameð deyr og enginn hafði tekið Kóraninn saman. Fólkið hafði lært utanað stóra hluta Kóransins . Og fólkið sem kunni Kóraninn var sent af Abu Bakhr til orrustu og þar var þeim slátrað. Abu Bakhr lét nú taka það saman af Kóraninum sem hægt var og safna því saman í handrit.“
,,Og fljótlega eftir það fór fólk að safna saman eigin handritum og miklar deilur risu út af því hvað ætti að vera í Kóraninum. Mashud hafði aðeins 111 kafla í Kóraninum. Ubai had 116 kafla og þeir sem tóku saman útgáfuna sem er notuð í dag almennt höfðu 114 kafla í honum.
Amus: Samkvæmt heimildum múslíma hafa heilu kaflarnir tapast eða hlutar Kóransins, einstakar málsgreinar hafa tapast og samt setti Uthman Kalífi það saman sem hann hafði og gaf út eigin útgáfu Kóransins og brenndi allar sannanirnar. Ég er feginn því að enginn brenndi þessar sannanir. Við skulum ekki brenna neina Kórana, hvað mikið sem við erum ósammála þeim.
HALLÓ! MÚSLÍMAR, TAKIÐ ÞAÐ RÓLEGA, ÞETTA ER BARA PÍNULÍTILL MINNIHLUTI ÖFGAMANNA! EKKERT TIL AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF.
Þegar þetta er skrifað um kl. 17.00 GMT 10.9.2010, þá liggur ekki ennþá endanlega fyrir hvort nokkrir Kóranir verða brenndir eða ekki í Ainesville, Flórida. Fundir hafa farið fram á milli Séra Terry Jones og Imams á staðnum að nafni Muhammad Musri og hefur það orðið að samkomulagi milli þeirra að fresta Kóransbrennunni þangað til þeir hafa hitt Faisal Abdul Rauf, sem er forstöðumaður hinnar væntanlegu moskubyggingar í nágrenni við rústir Tvíburaturnanna sem styr hefur staðið um undanfarið. Jones taldi sig hafa verið búinn að ná samkomulagi við múslímana um að byggingin væntanlega yrði færð og hafði vitni að þeim samtölum, en síðan skiptu múslímarnir um skoðun eftir að Terry fór að linast og sögðust ekki hafa lofað neinu. Kóranbrennan mun því fara fram ef ekki næst staðfast samkomulag um flutning moskunnar frá rústum Tvíburaturnanna.
En auðvitað hefur þessi bókabrenna ekki minnstu áhrif á ,,Jihad“ múslíma gegn ÖLLUM EKKI-MÚSLÍMUM, þó þeir vilji endilega fela glæpaverk sín og ofbeldi bak við Kóranbrennuna, en við skulum ekki láta þá gabba okkur. Þeir munu halda sínu striki við ofbeldisverk, íkveikjur, Biblíubrennur, nauðganir, þjófnaði, bílabrennur, skólabrennur og bókasafnsbrennur á Vesturlöndum sem og annars staðar. Þeir gætu samt tekið einhverja dýfu í stríðsæsingum, bara til að koma því inn hjá ekki-múslímum að glæpaverk of ofbeldi s.l. 1400 séu öll að kenna Ísraelsmönnum og Bandaríkjunum, en ekkert að kenna múslímum sem alltaf eru fátæku fórnarlömbin sem eiga svo bágt að það verður að kenna mikið í brjóst um þá og virða ,,trúarlegar“ tilfinningar þeirra.
EN HALLÓ MÚSLÍMAR! HVERJIR VORU ÞAÐ ANNARS SEM RÉÐUST Á ÍSLAND ÁRIÐ 1627, rændu rupluðu, nauðguðu, drápu, limlestu og rændu fólki? Var það Ísrael og Ameríkananum að kenna? Höfðu Íslendingar eitthvað gert á hlut Ottóman Kalífadæmisins til að réttlæta þessa innrás hérlendis?
Úr ritgerð Planck´s Constants ,,Múslims Burn Bibles Routinely and Often“:
Ef Kristið fólk og Gyðingar eru spurðir: ,,Hvernig þætti þér það ef múslímar brenndu Biblíur?“
Hér stöndum við frammi fyrir vandamáli: við höfum ekki brennt Kóraninn opinberlega í aldaraðir. En á sama tíma hafa Múslímar brennt milljónir af Biblíum. Þeir gera það ennþá á hverjum degi - auk þess að Sádi Arabar setja allar Biblíur í tætarann sem koma inn í tollinn hjá þeim.
Hefur nokkur heyrt í nokkrum íslömskum leiðtogum, þjóðhöfðingjum, imamum, kalla eftir því að þessum Biblíubrennum sé hætt?
Faðir Manuel Musallem, yfirmaður latnesku kirkjunnar á Gaza sagði AP að múslímar hefðu umturnað öllu, brennt og stolið í skólanum og klaustrinu í þeim hluta Gaza lengjunnar sem lítið samfélag Rómverks Kaþólskra býr á. Hann sagði AP að krossar hefðu verið brotnir, skemmdir voru unnar á styttum Jesús og í Skóla Rósasystranna og nærliggjandi klaustri voru bænakver brennd.
Sjá nánar um svínslega framkomu múslíma á þessari slóð:
Hér er verið að vitna til uppátækis trúarhóps í Florida undir stjórn Terry Jones, sem ætlar að brenna Kóraninn þann 11. September n.k. Auðvitað eiga menn ekki að stunda bókabrennur, banna bækur eða setja þær í tætara, því slíkt bendir til málefnalegrar uppgjafar. Eðlileg skoðanaskipti eru vænlegri til árangurs að hætti siðaðra manna. En ef til vill telur Terry Jones ekki neinn grundvöll fyrir trúarlegum skoðanaskiptum við múslíma vegna mikilmennskubrjálæðis þeirra eins og kemur fram í þeim ráðstefnum sem Abdullah Sádakongur hefur staðið fyrir á Vesturlöndum. Þar áttu að fara fram skoðanaskipti á trúarlegum grundvelli. En raunin varð sú að talsmenn múslíma fengu nægan tíma til ræðuhalda, en hinir ekki og múslímarnir höfðu engan áhuga á að hlusta á það sem hinir sögðu því að Íslam væri jú toppurinn á trúarbrögðunum, og síðasta orðsending Allah til mannkynsins.
Tollurinn í Sádi Arabíu setur allar Biblíur í tætara sem inn í landið koma og kristnir hópar fá ekki að stunda samkomur sínar nema þá með algjörri leynd. Raunar eru Kristnir söfnuðir í Mið-Austurlöndum skráðir sem hryðjuverkasamtök, meir en segja er sú raunin í Tyrklandi.
En það sorglega við þessa frétt sem tveir fulltrúar Samkirkjuráðs Bandaríkjanna og tveir rabbínar stóðu að fyrir hönd fund trúarleiðtoga í gærkvöldi eru eftirfarandi yfirlýsing þeirra: ,, Í yfirlýsingu segja þeir árás á múslíma fyrir trú þeirra, og hótanir um að svívirða heilaga ritningu þeirra, vera árás á öll trúarbrögð og trúfrelsi í Bandaríkjunum.“
Þarna setja trúarleiðtogarnir Íslam á sama stall og önnur heiðarleg og friðsöm trúarbrögð og berlega kemur fram að trúarleiðtogarnir hafa ekki hugmynd um hvað stendur í Kóraninum, og að Kóraninn sé ekki annað en ómerkileg hugmyndafræði þar sem boðuð er nýlendustefna, ofbeldi, og heimsyfirráð í stíl verstu fasista. Auk þess að boða barsmíðar [Kóran, 004:034, 004:015] og dráp á konum eftir geðþótta húsbóndans, raunar er konan flokkuð sem húsdýr í öðrum íslömskum ritum.
Nú hefi ég ekki lesið ,,Mein Kampf“ Adolfs Hitlers, vegna þess einfaldlega að sú bók hefur verið bönnuð í flestum löndum Vesturlanda. Hún er hins vegar ein söluhæsta bók í Mið-Austurlöndum og höfð í hávegum vegna ofbeldisboðskapar og haturs á Ísrael að sögn fróðra manna. Hins vegur hefur það alveg farið fram hjá kirkjuleiðtogunum að Kóraninn er margfalt ofbeldisfyllri heldur en ,,Mein Kampf“ Hitlers og ætti tvímælalaust að banna hann og boðskap hans alls staðar ef sömu reglur giltu. Einnig hefur enginn séð ástæðu til að banna Kommúnistaávarpið þrátt fyrir ofbeldis og byltingarboðskapinn sem þar er að finna. En hér er ef til vill að finna ástæðu þess hvað sporðarnir á íslam og Marxismanum fléttast vel saman og varpar ljósi á orð Eric Holders, núverandi dómsmálaráðherra BNA og Marxista.
Ekki verður því annað sagt en að fréttaútsending trúarleiðtogana sé gaspur fáfróðra manna, sem lifa í gerviheim og ranghugmyndum sem ekki standast raunveruleikann . Þeir vita ekkert um aðalkenningu íslams sem er hugmyndafræði ,,Jihad“ kvennakúgun og óréttlæti, þrælahald, mansal, hópnauðganir, hóprán, íkveikjur, kirkjubrennur, morð á kristnum prestum osfrv. Allt þetta fer fyrir ofan garð og neðan hjá þessum prélátum. Þeim stæði nær ásamt stjórnmálamönnum og vísindamönnum Vesturlanda og hysja upp um sig buxurnar og fara að standa uppréttir eins og menn gegn ofbeldisboðskap múslíma og fara að berjast á hinum raunverulega vígvelli hugmyndanna við Sádi Araba, hugmyndafræði þeirra og leppa þeirra í stað þess að fórna endalaust Vestrænum mannslífum á blóðvöllum Allah í Mið-Austurlöndum. Það dugar lítið gegn íslam að hlaupa um eins og ráðalausar hauslausar hænur.